top of page
0.jpg
Hafðu samband

Ásrún Á. Jónsdóttir

Ásrún Á. Jónsdóttir útskrifaðist með MSc-gráðu í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2020 og fékk starfsleyfi sama ár. Hún er einnig með MSc-gráðu í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði frá sama skóla og mun ljúka örnámi í íþróttasálfræði vorið 2026.

Ásrún sinnir greiningu og meðferð á sálrænum vanda hjá fullorðnum, börnum og ungmennum. Hún vinnur meðal annars með kvíða, þunglyndi, lágt sjálfsmat og áfallastreituröskun.

Hún hefur sérstakan áhuga á og reynslu af því að vinna með barnshafandi konum og andlega líðan þeirra á tímabilinu í kringum og eftir fæðingu. Ásrún vinnur einnig mikið með menntaskólanemendum og með gerendum og þolendum kynferðisbrota.

Áhugasvið hennar nær einnig til flóttafólks, innflytjenda, LGBTQIA+ einstaklinga og íþróttafólks.

Staðsetning

Sálfræðistofa Hafnarfjarðar

Bæjarhrauni 8

Hafnarfjörður 220

bottom of page