Sálfræðistofa
Hafnarfjarðar
Tilbaka
Linzi Trosh

Hafðu samband

linzitrosh@gmail.com

Linzi Trosh

Linzi er sérfræðingur í klínískri sálfræði. Hún er með reynslu í greiningu og meðferð geðrænna vandamála hjá fullorðnum. Linzi sinnir aðallega greiningu og meðferð vegna kvíðaraskana og áfallastreituröskunar. Linzi vinnur fyrst og fremst út frá aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar og hefur sérhæft sig í greiningu og meðferð við áföllum.

Linzi lauk MSc prófi í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2016 og sérnámi í hugrænni atferlismeðferð frá Endurmenntun Háskóla Íslands í samstarfi við Oxford Therapy Center árið 2021. Linzi fékk sérfræðiviðurkenningu frá Embætti landlæknis árið 2023 í klínískri sálfræði fullorðinna.

Linzi hefur unnið á Hvítabandinu og í geðendurhæfingu á Kleppi og í þunglyndis- og kvíðateyminu sem býður upp á einstaklingsþjónustu og hópmeðferðir fyrir einstaklinga sem kljást við þunglyndi og kvíða. Síðastliðin ár hefur hún starfað í áfallateyminu.

Sálfræðingur í geðteyminu sem býður upp á göngudeildaþjónustu fyrir einstaklinga 18 ára og eldri. Þeim stendur til boða einstaklingsþjónusta og hópmeðferðir við ýmsum geðrænum vanda.