
Hafðu samband
Þorbjörg Sveinsdóttir
Meðferð og sérsvið
Þorbjörg Sveinsdóttir annast meðferð fullorðinna, sem og barna og ungmenna. Hún sinnir einkum meðferð vegna áfalla, áfallastreituröskunar (PTSD), kvíðaraskana, þunglyndis, lágs sjálfsmats og tilfinninga- og samskiptavanda auk almennrar sálfræðiráðgjafar og handleiðslu. Þorbjörg hefur víðtæka reynslu af því að vinna með þolendur ofbeldis af hvaða tagi sem er, líkamlegs, andlegs eða kynferðisofbeldis. Þá hefur hún mikla reynslu af því að vinna með foreldra barna sem sætt hafa ofbeldi og samskiptavanda í fjölskyldum í kjölfar áfalla.
Meðferðaraðferðir
Þorbjörg styðst við gagnreyndar aðferðir í starfi sínu eins og hugræna atferlismeðferð (HAM), áfallamiðaða hugræna atferlismeðferð (ÁM-HAM), hugræna úrvinnslumeðferð, ásamt ACT (Acceptance and commitment therapy).
Menntun og starfsferill
Þorbjörg Sveinsdóttir lauk starfsréttindanámi í klínískri sálfræði og meistaragráðu í sálfræði við Háskóla Íslands 2008. Hún starfaði í Barnahúsi í fjölda ára með börn og unglinga sem eru þolendur líkamlegs- og/eða kynferðislegs ofbeldis og foreldra þeirra. Hún hefur starfað frá árinu 2022 á Barna- og fjölskyldustofu sem sérfræðingur, einkum í teymi vegna barna með fjölþættar stuðningsþarfir. Á árunum 2006–2007 starfaði Þorbjörg sem Verkefnastjóri á geðdeild LSH.
Ritstörf og fræðsla
Þá er Þorbjörg annar höfundur bókarinnar Verndum Þau sem kom út árið 2007 og var endurútgefin árið 2012, en bókin er skrifuð fyrir öll sem starfa með börnum og unglingum, einkum á sviði æskulýðsvettvangsins. Þorbjörg hefur haldið fjölda námskeiða um allt land sem byggja á efnivið bókarinnar, fyrir starfsfólk sem starfar með börnum, meðal annars árleg námskeið hjá KFUMK/M og Bandalagi Íslenskra Skáta.
Símenntun
Þorbjörg hefur sótt fjölda námskeiða, ráðstefna og vinnustofa tengdra sínum störfum, bæði hérlendis sem og erlendis.
Móttaka og tímapantanir
Þorbjörg hefur verið með stofu á Sálfræðistofu Hafnarfjarðar frá árinu 2016 og tekur á móti skjólstæðingum á þriðjudögum og fimmtudögum eftir kl. 17. Hægt er að panta tíma í gegnum netfangið tobbasveins@gmail.com
