top of page
_W1A7769-Edit.jpg
Hafðu samband

Ásta Sigurðardóttir

Ásta sinnir greiningu og meðferð á sálrænum vanda hjá börnum, ungmennum og fullorðnum. Hún sinnir m.a. meðferð vegna áfalla, áfallastreituröskunar (PTSD), kvíðaraskana, lágs sjálfsmats og tilfinninga- og samskiptavanda. Ásta hefur víðtæka reynslu af því að vinna með afleiðingar kynferðisofbeldis, bæði meðal barna, ungmenna og fullorðinna. Ásta sinnir einnig meðferð barna og ungmenna sem hafa sýnt af sér óviðeigandi og/eða skaðlega kynhegðun gagnvart öðrum börnum og ungmennum.

Ásta lauk MSc námi í klínískri sálfræði við Háskólann í Reykjavík árið 2019 og hlaut starfsréttindi sem sálfræðingur sama ár. Ásta er einnig menntaður viðskiptafræðingur.

Ásta hefur m.a. starfað sem sálfræðingur hjá Litlu Kvíðameðferðarstöðinni og sem sálfræðingur og sérhæfður rannsakandi í Barnahúsi. Ásta er í sérhæfðu teymi á vegum Barna- og fjölskyldustofu sem sinnir sálfræðiþjónustu vegna óviðeigandi og skaðlegrar kynhegðunar barna og ungmenna.

Ásta styðst við gagnreyndar aðferðir í starfi sínu eins og hugræna atferlismeðferð (HAM), áfallamiðaða hugræna atferlismeðferð (TF-CBT) og Eye Movement, Desensitization and Reprocessing (EMDR) og díalektíska atferlismeðferð ásamt öðrum gagnreyndum aðferðum.

Staðsetning

Sálfræðistofa Hafnarfjarðar

Bæjarhrauni 8

Hafnarfjörður 220

bottom of page