
Hafðu samband
Pétur Örn Svansson
Pétur sinnir sálfræðimeðferð, handleiðslu og ráðgjöf fyrir ungmenni og fullorðna einstaklinga.
Hann vinnur mikið með kvíða, vanlíðan, sjálfstyrkingu, tilfinningastjórn, streituþolsfærni, félagsfærni og foreldraráðgjöf.
Hann starfar einnig sem sálfræðingur í Klettabæ þar sem hann vinnur með ungmennum með fjölþættar þjónustuþarfir, foreldrum þeirra og starfsmönnum.
Þessar þjónustuþarfir geta falið í sér taugaþroskaraskanir eins og einhverfu, tengslavanda, hegðunarvanda, félagslega einangrun, áhættuhegðun sem og tilfinningalegar og geðrænar áskoranir.
Í Klettabæ hefur Pétur sérhæft sig í fjöláfalla- og tengslamiðuðum stuðningi.
Áhersla:
Ungmenni, einstaklingar, hegðunarvandi, félagsleg einangrun, sjálfstyrking, vanlíðan, sjálfstjórn, fjöláfalla- og tengslamiðaður stuðningur, foreldraráðgjöf.
Pétur lauk BSc prófi í sálfræði við Háskóla Íslands árið 2010 og cand.psych. prófi frá Háskólanum í Kaupmannahöfn með áherslu á klíníska sálfræði árið 2012.
Pétur tekur viðtöl á Sálfræðistofu Hafnarfjarðar alla fimmtudaga.
