top of page
0 (1).jpg
Hafðu samband

Linzi Trosh

Linzi er sérfræðingur í klínískri sálfræði. Hún er með reynslu í greiningu og meðferð geðrænna vandamála hjá fullorðnum. Linzi sinnir aðallega greiningu og meðferð vegna kvíðaraskana og áfallastreituröskunar. Linzi vinnur fyrst og frest út frá aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar og hefur sérhæft sig í greiningu og meðferð við áföllum.

Menntun

Linzi lauk MSc prófi í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2016 og sérnámi í hugrænni atferlismeðferð frá Endurmenntun Háskóla Íslands í samstarfi við Oxford Therapy Center árið 2021. Linzi fékk sérfræðiviðurkenningu frá Embætti landlæknis árið 2023 í klínískri sálfræði fullorðinna.

Starfsferill

2018-

Landspítalinn

Linzi hefur unnið á Hvítabandinu og í geðendurhæfingu á Kleppi. Síðan vann hún í þunglyndis- og kvíðateyminu sem býður upp á einstaklingsþjónustu og hópmeðferðir fyrir einstaklinga sem kljást við þunglyndi og kvíða. Síðastliðin ár hefur hún starfað í áfallateyminu.

2016 – 2018

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Sálfræðingur í geðteyminu sem býður upp á göngudeildaþjónustu fyrir einstaklinga 18 ára og eldri. Þeim stendur til boða einstaklingsþjónusta og hópmeðferðir við ýmsum geðrænum vanda.

Reynsla af eftirfarandi meðferðaraðferðum:

  • hugrænni atferlismeðferð

  • díalektískri atferlismeðferð

  • hugrænni úrvinnslumeðferð

  • Narrative exposure therapy

  • Prolonged exposure therapy

Staðsetning

Sálfræðistofa Hafnarfjarðar

Bæjarhrauni 8

Hafnarfjörður 220

bottom of page